Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 23:58
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Tóku punktana þrjá heim með þyrlunni
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.
Mynd: Breiðablik
Samgöngumál Vestmannaeyja hafa mikið verið til umfjöllunar en Breiðablik brá á það ráð að ferðast til og frá Eyjum með þyrlu. Blikar unnu 2-1 útisigur gegn ÍBV í dag.

Fyrir leikinn fór þyrlan sjö ferðir frá Bakka í Landeyjum til Vestmannaeyja; fimm með leikmenn og starfslið Breiðabliks, eina með farangur og eina með dómurum leiksins.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  2 Breiðablik

Eftir leik flaug þyrlan svo með alla aftur upp á fasta landið.

„Jæja, æðislegur tími hérna í Vestmannaeyjum. Nú tökum við þrjá punktana heim í Kópavoginn, með þyrlunni," sagði Ívar Örn Árnason, varnarmaður Breiðabliks, á samfélagsmiðlum félagsins.

Herjólfur hefur verið að sigla frá Þorlákshöfn og hefði Breiðabliksliðið þurft að gista í Eyjum ef það hefði ferðast með bátnum. Kostnaðurinn við að nýta sér þyrluna er sambærilegur og ef Blikar hefðu siglt.

Breiðablik er enn ósigrað í Bestu deildinni en liðið er með ellefu stig, fjórum stigum frá toppliði KR.



Slapp
banner
banner