Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 23:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristian og Daníel Freyr lögðu upp - Ari á skotskónum
Ari Sigurpálsson
Ari Sigurpálsson
Mynd: Elfsborg
Kristian Nökkvi Hlynsson
Kristian Nökkvi Hlynsson
Mynd: EPA
Daníel Freyr Kristjánsson
Daníel Freyr Kristjánsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Daníel Freyr Kristjánsson lagði upp í fjörugum leik Fredericia gegn FCK í dönsku deildinni í dag.

Staðan var 1-1 eftir ellefu mínútna leik en Fredericia komst yfir á 25. mínútu og Daníel lagði upp markið. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli. Viktor Bjarki Daðason kom inn á hjá FCK eftir rúmlega klukkutíma leik en komst ekki á blað.

FCK er í 7. sæti með 45 stig, fimm stigum á undan OB í baráttunni um Sambandsdeildarsæti þegar sex stig eru eftir í pottinum. Fredericia er í 11. og næst neðsta sæti með 31 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.

Mikael Neville Anderson var ekki í leikmannahópi AGF sem vann Sonderjyske í toppbaráttunni. Rúnar Þór Sigurgeirsson er á meiðslalistanum hjá Sonderjyske og Daníel Leó Grétarsson var í banni. AGF er á toppnum með 61 stig, þremur stigum á undan Midtjylland sem á leik til góða. Sonderjyske er í 6. sæti með 41 stig.

Ísak Snær Þorvaldsson var ónotaður varamaður þegar Lyngby tapaði 2-1 gegn Hillerod í toppslag í næst efstu deild í Danmörku. Lyngby er á toppnum, átta stigum á undan Hillerod sem er í 2. sæti. Liðið er níu stigum á undan Hvidovre sem er í þriðja sæti. 12 stig eru eftir í pottinum og tvö efstu liðin fara beint upp.

Ari Sigurpálsson kom Elfsborg yfir í 1-1 jafntefli gegn AIK í sænsku deildinni. Júlíus Magnússon var einnig í byrjunarliðinu. Róbert Frosti Þorkelsson spilaði 74 mínútur þegar GAIS vann öruggan 4-0 sigur á Orgryte. Elfsborg er í 3. sæti með 11 stig eftir sex umferðir en GAIS er í 11. sæti með fimm stig.

Kristian Nökkvi Hlynsson lagði upp seinna mark Twente í 2-2 jafntefli gegn AZ Alkmaar í hollensku deildinni en AZ jafnaði metin í uppbótatíma. Alfons Sampsted og Stefán Ingi Sigurðarson voru í byrjunarliði Go Ahead Eagles í 2-2 jaftefli gegn Sparta Rotterdam. Twente er í 5. sæti með 55 stig eftir 32 umferðir, jafn mörg stig og Ajax sem er í 4. sæti. GA Eagles er í 11. sæti með 38 stig.

Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund og Viðar Ari Jónssn var í byrjunarliði HamKam þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli í norsku deildinni. Hrannar Snær Magnússon var ónotaður varamaður hjá Kristiansund. Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliðinu og Davið Snær Jóhannsson kom inn á sem varamaður þegar Álasund tapaði 1-0 gegn Sandefjord. Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliði Valerenga sem gerði 2-2 jafntefli gegn KFUM.

HamKam er í 7. sæti og Sandefjord í 8. sæti, bæði með 10 stig. Kristiansund er í 9. sæti með átta stig og Valerenga er í 11. sæti með 8 stig.

Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði Panathinaikos sem gerði markalaust jafntefli gegn AEK Aþenu í grísku deildinni. Það er ljóst að Panathinaikos endar í 4. sæti og fer í Sambandsdeildina en þrjár umferðir eru enn eftir.

Levadiakos vann 5-2 sigur á Volos en Hörður Björgvin Magnússon (Levadiakos) og Hjörtur Hermannsson (Volos) voru ónotaðir varamenn. Levadiakos er í 5. sæti með 25 stig en Volos er í 8. sæti með 17 stig.

Sigurður Bjartur Hallsson spilaði tæpan hálftíma í 2-0 tapi AD Merida gegn Lugo í spænsku C-deildinni. Liðið er í 10. sæti með 48 stig.

Andri Fannar Baldursson var í banni þegar Kasimpasa gerði 1-1 jafntefli gegn Kocaelispor í tyrkensku deildinni. Kasimpasa er í 13. sæti meeð 32 stig, fjórum stigum frá fallsæti þegar sex stig eru eftir í pottinum.
Slapp
banner
banner
banner