Kristall Máni Ingason skoraði þrennu fyrir Íslendingaliðið Brann gegn Tromsö á dögunum og í gær skoraði hann glæsilegt mark eftir einstaklingsframtak gegn Fredrikstad.
Kristall er fullur sjálfstrausts um þessar mundir en Brann vann leikinn 3-1 og er það gott veganesti í næsta leik, bikarúrslitaleik gegn Bodö/Glimt á laugardag.
Kristall er fullur sjálfstrausts um þessar mundir en Brann vann leikinn 3-1 og er það gott veganesti í næsta leik, bikarúrslitaleik gegn Bodö/Glimt á laugardag.
„Ég er farinn að finna mig betur í liðinu, ég spila með góðum leikmönnum og það hjálpar mér að skora mörk," sagði Kristall við TV2 eftir leikinn.
Kristall og Jón Dagur Þorsteinsson byrjuðu báðir leikinn hjá Brann sem er í 5. sæti deildarinnar með 10 stig. Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.
Hér má sjá mark Kristals frá því í gær.


