Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
Óskar Hrafn: Það er svo dásamlegt við Jökul
Siggi Höskulds eftir stórt tap: Þeir voru sterkari, fljótari og betri í fótbolta
Sölvi eftir 6-0 sýningu: Alltof góðir leikmenn á bekknum
Óskar Bogga: Þetta er bara statement inn í deildina
   mán 04. maí 2026 21:27
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Heimir: Fórum í gildrurnar sem þeir settu fyrir okkur
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Erfiður leikur. Vestramenn eru með gríðarlega öflugt lið og vel skipulagðir, ollu okkur vandræðum en kannski í fyrri hálfleik vorum við svolítið óþolinmóðir á boltanum. Það lagaðist í seinni hálfleik, við svona náðum að loka þessu nokkuð vel. Héldum markinu hreinu sem var jákvætt" sagði Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis eftir sigur gegn Vestra í Árbænum í kvöld.


Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  0 Vestri

Var erfitt að brjóta niður Vestra í dag?

„Já, algjörlega. Ég meina þetta eru margir góðir leikmenn og þeir voru með gott skipulag. Vandinn í dag var að við vorum að fara í gildrurnar sem þeir voru búnir að setja fyrir okkur og mér fannst við laga það og vorum betri í seinni hálfleik."

Hvað þurfti að laga í hálfleik?

„Við náðum ekki að nýta svæðin milli varnar og miðju. Náðum ekki nógu góðum færslum á boltanum, vantaði svona tempó. Sendingarnar voru kannski ekki alveg nógu nákvæmar en við náðum að laga það."

Ertu ánægður með byrjunina?

„Já, fín byrjun. Ánægðastur með það að halda hreinu, það voru forsendur í seinni hálfleik eftir að þeir færðu sig framar á völlinn að skora fleiri mörk, en náðu því ekki."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan.



Slapp
banner