Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
England: Þægilegur sigur Bournemouth
Mynd: EPA
Mynd: Bournemouth
Bournemouth 3 - 0 Crystal Palace
1-0 Jefferson Lerma ('10 , sjálfsmark)
2-0 Eli Kroupi ('32 , víti)
3-0 Rayan ('77 )

Bournemouth og Crystal Palace áttust við í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en gestirnir í liði Palace voru að hvíla ýmsa lykilmenn fyrir undanúrslit Sambandsdeildarinnar.

Palace siglir lygnan sjó í deildinni en Bournemouth gat komist í evrópudeildarsæti með sigri. Heimamenn byrjuðu af krafti og náðu forystunni strax á tíundu mínútu þegar Jefferson Lerma skoraði sjálfsmark eftir hornspyrnu. Lerma misreiknaði flug boltans eftir skalla frá Evanilson og skoraði klaufalegt sjálfsmark af stuttu færi í stað þess að hreinsa frá marki.

Bournemouth var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik. Crystal Palace sá ekki til sólar og tvöfaldaði Eli Junior Kroupi forystuna með marki úr vítaspyrnu á 32. mínútu. Vítaspyrnudómurinn er afar umdeildur þar sem Jordan Henderson markvörður Palace virðist varla hafa snert sóknarleikmann Bournemouth, en VAR-teymið ákvað að skerast ekki inn í eftir nokkuð langt spjall við Rob Jones dómara.

Staðan var 2-0 í leikhlé og gerði Oliver Glasner þjálfari Palace þrefalda skiptingu í hálfleik þar sem Tyrick Mitchell, Adam Wharton og Ismaila Sarr komu saman inn af bekknum.

Síðari hálfleikurinn var talsvert jafnari en Palace nýtti ekki færin sem sköpuðust. Rayan skoraði eftir góða stungusendingu frá David Brooks.

Lokatölur urðu 3-0 og er Bournemouth í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar með 52 stig eftir 35 umferðir. Framundan er afar hörð barátta um evrópusæti.
Slapp
banner
banner