Enska stórveldið Chelsea gæti gengið frá kaupum á franska markverðinum Mike Maignan í dag.
Gazzetta dello Sport greinir frá því að AC Milan sé reiðubúið til að selja markvörðinn sinn fyrir 15 milljónir punda eftir að hafa hafnað 12,6 milljón punda tilboði frá Chelsea á dögunum. Það eru því 2,4 milljónir sem standa í vegi fyrir félagaskiptunum sem stendur.
Milan vildi upprunalega fá 25 milljónir punda fyrir Maignan, sem er aðeins með eitt ár eftir af samningi og virðist ekki spenntur fyrir að endurnýja.
Chelsea er í leit að nýjum aðalmarkverði fyrir HM félagsliða í sumar, þar sem Enzo Maresca þjálfari er ekki nægilega ánægður með Robert Sánchez og Filip Jörgensen markverði liðsins.
Chelsea verður að kaupa Maignan í dag, þar sem félagaskiptaglugginn fyrir HM lokar klukkan 18:00 á íslenskum tíma (19:00 í London).
Félagaskiptaglugginn opnar aftur um næstu mánaðamót.
Maignan verður 30 ára gamall í byrjun júlí og lék með Lille áður en hann skipti til Milan. Hann er aðalmarkvörður franska landsliðsins.
Mile Svilar, markvörður Roma, er efstur á óskalista Milan til að fylla í skarðið fyrir Maignan.
Athugasemdir