Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   þri 10. júní 2025 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Donnarumma slær á sögusagnir: Vil vera áfram í París
Mynd: EPA
Markvörðurinn Gianluigi Donnarumma er gríðarlega eftirsóttur þar sem hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Paris Saint-Germain.

Felst stórlið Evrópu eru áhugasöm um að bjóða þessum ítalska landsliðsmarkverði samning en Donnarumma vill vera áfram í París.

PSG er að undirbúa samningstilboð fyrir Donnarumma þar sem félagið vill halda honum innan sinna raða.

„Ég vil helst vera áfram hjá Paris Saint-Germain og skrifa undir nýjan samning. Ég býst ekki að það verði neitt vandamál í viðræðunum," sagði Donnarumma í gær eftir að hafa haldið hreinu í fjörugum landsleik Ítalíu gegn Moldóvu.
Slapp
Athugasemdir
banner