Argentína er löngu búið að tryggja sér sæti á HM en liðið mætti Kólumbíu í nótt.
Luis Diaz kom Kólumbíu yfir eftir glæsilegt einstaklingsframtak. Enzo Fernandez fékk að líta rauða spjaldið fyrir að sparka í höfuðið á Kevin Castaño á 70. mínútu.
Luis Diaz kom Kólumbíu yfir eftir glæsilegt einstaklingsframtak. Enzo Fernandez fékk að líta rauða spjaldið fyrir að sparka í höfuðið á Kevin Castaño á 70. mínútu.
Þegar níu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma tryggði Thiago Almada Argentínu stig. Argentína er á toppnum en Kólumbía er í 6. sæti og dugir stig gegn Bólivíu í næstu umferð til að tryggja sér sæti á HM.
Carlo Ancelotti hefur komið Brasilíu á HM en liðið vann Paragvæ 1-0 þar sem Vinicius Junior skoraði eftir undirbúning Matheus Cunha. Cunha hefði sjálfur getað skorað í leiknum en hann hitti ekki á markið með höfðinu fyrir opnu marki. Paragvæ er einnig komið á HM.
Bólivía lagði Síle sem fer ekki á HM. Þetta er þriðja mótið í röð sem Síle missir af.
Athugasemdir