Sádi-arabíska stórveldið Al-Hilal hefur lagt fram rúmlega 20 milljón evra tilboð til að kaupa Angelino, vinstri bakvörð AS Roma.
Al-Hilal þarf að ganga frá kaupum á vinstri bakverði fyrir lok félagaskiptagluggans fyrir HM á þriðjudaginn.
Félagið fékk kauptilboði í Theo Hernández, vinstri bakvörð AC Milan, samþykkt en hann á enn eftir að samþykkja risastórt samningstilboð olíufurstanna. Því neyðist Al-Hilal til að snúa sér að næsta skotmarki fyrir bakvarðarstöðuna.
Angelino var einn af betri vinstri bakvörðum ítölsku deildarinnar á nýliðnu tímabili en hann er 28 ára gamall og hefur áður leikið fyrir félög á borð við Manchester City, RB Leipzig og Galatasaray.
Angelino er með þrjú ár eftir af samningi sínum við Roma.
Athugasemdir