Harvey Elliott viðurkennir að hann sé ósáttur með lítinn spiltíma hjá Englandsmeisturum Liverpool.
Elliott er 22 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi sínum við félagið, en hann kom við sögu í 28 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu og þar af var hann aðeins 6 sinnum í byrjunarliðinu.
Honum tókst þrátt fyrir það að skora 5 mörk og gefa 3 stoðsendingar á um 850 spiluðum mínútum. Hann kom því með beinum hætti að einu marki á rétt rúmlega 100 mínútna fresti.
Hann kom til að mynda inn á lokamínútunum á útivelli gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni og skoraði sigurmarkið. Eftir það byrjaði hann á bekknum á heimavelli gegn Southampton, en var skipt inn í hálfleik þegar gestirnir voru afar óvænt komnir einu marki yfir. Lokatölur urðu 3-1 fyrir Liverpool.
„Ég bjóst við að fá fleiri mínútur. Ég var í vímu eftir innkomuna gegn PSG og bjóst við að byrja næsta leik í deildinni og fá loksins tækifæri til að sanna mig, en það var ekki svoleiðis. Ég veit ekki hvað ég get gert í þessu annað en að æfa vel. Stjórinn er stjórinn," sagði Elliott.
„Hann er sá sem ræður. Hann er ástæðan fyrir því að við unnum deildina. Við unnum deildina útaf hans ákvörðunum og það var hans ákvörðun að hafa mig ekki í byrjunarliðinu. Ég get ekki kvartað. Ég vissi að þetta yrði erfitt eftir meiðslin sem ég lenti í en ég bjóst samt við að fá fleiri tækifæri. Svona getur fótboltinn verið."
Elliott byrjaði aðeins tvo úrvalsdeildarleiki á tímabilinu og segist ekki vilja eyða næstu árum á varamannabekknum.
„Ég er 22 ára gamall og verð 23 ára á næstu leiktíð. Ég verð að fá spiltíma. Þetta er eitthvað sem ég þarf að ræða við félagið um í sumar. Ég vil ekki vera að eyða mikilvægum árum sitjandi á bekknum. Fótboltaferill er stuttur og fullur af óvissu, maður veit aldrei hvað getur gerst.
„Ég þarf að leggjast undir feld og hugsa um framtíðina. Ég þarf að finna leiðir til að bæta mig sem leikmaður því það er það mikilvægasta á þessum tímapunkti. Ég vil bæta mig og vera besta mögulega útgáfan af sjálfum mér en kannski þarf ég að skipta um félag til að geta gert það.
„Þetta er ákvörðun sem ég verð að taka. Það er ekkert sem lætur mig vilja fara frá Liverpool. Ég elska félagið, stuðningsmennina og liðsfélagana. En núna snýst þetta um hvað er best fyrir ferilinn minn."
Athugasemdir