Sádi-arabíska risafélagið Al-Nassr ætlar að styrkja hópinn sinn fyrir næstu leiktíð eftir vonbrigðatímabil heimafyrir og í Meistaradeildinni.
Cristiano Ronaldo virðist vera búinn að samþykkja nýjan samning við félagið og eru stjórnendur að reyna að kaupa spænska miðjumanninn Fabián Ruiz úr röðum Paris Saint-Germain.
Ruiz er 29 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi sínum við PSG, þar sem hann sinnir mikilvægu hlutverki undir stjórn Luis Enrique.
Ruiz hefur verið hjá PSG í þrjú ár en þar áður lék hann fyrir Napoli á Ítalíu. Hann á 39 landsleiki að baki fyrir Spán og hefur bæði unnið Þjóðadeildina og Evrópumótið með landsliðinu.
Al-Nassr er sagt vera að undirbúa 40 milljón evra tilboð fyrir Ruiz, en fjölmiðlar telja afar ólíklegt að PSG samþykki svo lágt kauptilboð.
Enrique hefur miklar mætur á Ruiz og vill halda honum í leikmannahópinum, sérstaklega eftir að hann hjálpaði PSG að landa sínum fyrsta Meistaradeildartitli.
Athugasemdir