Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 11. júní 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ferdinand: Gyökeres er ekki rétti maðurinn
Mynd: EPA
Victor Gyökeres, framherji Sporting, er einn mest spennandi framherji Evrópu um þessar mundir.

Hann hefur verið orðaður í burtu frá portúgalska félaginu. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Man Utd en Ruben Amorim var stjóri Gyökeres hjá Sporting.

Rio Ferdinand, fyrrum varnarmaður Man Utd, hefur hins vegar ekki trú á Gyökeres sem hefur skorað 97 mörk í 102 leikjum fyrir Sporting.

„Ég tel að hann sé ekki rétti maðurinn. Ég hef séð hann spila þrisvar og ég hugsaði: 'Hann fær ekki þessi færi í úrvalsdeildinni'. Þegar hann er mætir einhverjum sem er jafn sterkur, hvað hefur hann þá upp á að bjóða?," sagði Ferdinand.
Slapp
Athugasemdir
banner