Ítalski landsliðsmaðurinn Diego Coppola er á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Brighton frá Hellas Verona en þetta fullyrðir Fabrizio Romano í dag.
Coppola er 21 árs gamall miðvörður sem er uppalinn hjá Hellas Verona.
Hann hefur verið lykilmaður í vörn Verona síðustu ár og í hóp efnilegustu varnarmanna Ítalíu.
Miðvörðurinn var valinn í ítalska landsliðshópinn fyrir þetta verkefni eftir góða frammistöðu á tímabilinu og þreytti frumraun sína nokkrum dögum síðar í 3-0 tapinu gegn Noregi í undankeppni HM.
Romano segir að Brighton hafi nú náð samkomulagi við Verona um kaup á Coppola en kaupverðið nemur um 8 milljónum punda með öllu inniföldu.
Coppola mun gangast undir læknisskoðun á næstu dögum og skrifa í kjölfarið undir langtímasamning.
Athugasemdir