Miðjumaðurinn efnilegi Jobe Bellingham hefur ákveðið að feta í fótspor stóra bróður sins og er við það að skrifa undir fimm ára samning við Borussia Dortmund.
Bellingham stóðst læknisskoðun hjá Dortmund í dag og verður kynntur sem nýr leikmaður liðsins á næstunni. Hann mun því geta tekið þátt með þýska stórveldinu á HM félagsliða í sumar.
Bellingham er aðeins 19 ára gamall og var valinn í lið ársins í Championship deildinni á Englandi, auk þess að vera valinn sem efnilegasti leikmaður deildarinnar.
Bellingham verður dýrasti leikmaður til að vera seldur frá Sunderland þar sem Dortmund er að borga rúmlega 30 milljónir punda til að kaupa hann. Sú upphæð getur hækkað með árangurstengdum aukagreiðslum, auk þess sem Sunderland heldur 15% af endursöluvirði leikmannsins.
Athugasemdir