Jamie Gittens, leikmaður Dortmund, hefur verið orðaður við Chelsea en það er orðið ljóst að hann muni ekki spila með Lundúnaliðinu á HM félagsliða.
Dortmund hefur hafnað 42 milljón punda tilboði Chelsea í leikmanninn en félagið vill fá um 55 milljónir punda fyrir hann.
Dortmund er búið að skrá hann í hópinn fyrir HM og er því ljóst að að hann muni ekki geta spilað með Chelseea ef hann kemur til liðsins fyrir HM þar sem hann má ekki vera skráður í hópinn hjá tveimur liðum.
Þýska félagið hefur einnig skráð enska miðjumanninn Jobe Bellingham sem gekk til liðs við félagið frá Sunderland í dag.
Athugasemdir