Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Lamptey framlengir við Brighton
Mynd: EPA
Tariq Lamptey, leikmaður Brighton, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið.

Lamptey er 24 ára gamall hægri bakvörður sem hefur gegnt lykilhlutverki í liði Brighton síðustu ár.

Hann spilaði aðeins fimmtán deildarleiki á síðustu leiktíð vegna meiðsla og skoraði tvö mörk.

Útlit var fyrir að hann væri á förum frá félaginu, en samningur hans átti að renna út um mánaðamótin. Brighton bauð honum eins árs framlengingu sem Lamptey samþykkti og er Fabian Hürzeler, stjóri félagsins, í skýjunum með þá ákvörðun.

„Við erum í skýjunum með að Tariq verði áfram hér. Hann vill hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum og gefur okkur meiri breidd á vængstöðunum. Við hlökkum til að hafa Tariq sem hluta af okkar vegferð á næsta tímabili,“ sagði Hürzeler.

Abdallah Sima, Sebastian Jensen, Harry Mills, Odel Offiah og Jamie Mullins framlengdu einnig við félagið.


Athugasemdir
banner