Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   þri 10. júní 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM í dag - Stórveldi mæta til leiks
Úrslitaleikur fyrir Palestínu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í undankeppni HM í kvöld og í nótt þar sem stórveldi mæta til leiks bæði í Evrópu og Suður-Ameríku.

Í Evrópu fara sex leikir fram á sama tíma í kvöld, þar sem Holland tekur á móti Möltu á meðan Finnland spilar við Pólland.

Austurríki, Rúmenía, Albanía og Serbía eru einnig meðal þjóða sem mæta til leiks í evrópsku undankeppninni í kvöld.

Í Suður-Ameríku eru fimm leikir á dagskrá þar sem Argentína, Brasilía og Úrúgvæ eiga öll heimaleiki.

Argentína mætir Kólumbíu í stórleik kvöldsins en stórþjóðirnar eru allar svo gott sem öruggar með sæti á HM. Argentína er að rúlla undankeppninni upp og situr í toppsætinu með tíu stiga forystu á næstu þjóð.

Að lokum er komið að Asíu, þar sem lokaumferð undankeppninnar fer fram í dag. Þar er í raun lítil spenna þar sem Japan, Suður-Kórea, Jórdanía, Íran og Úsbekístan eru búin að tryggja sig á HM.

Ástralía verður næsta þjóð til að tryggja sér sæti á HM í gegnum forkeppnina í Asíu þegar landsliðið keppir við Sádi-Arabíu. Það eru þrjú stig á milli liðanna en Sádarnir þurfa að sigra með fjögurra marka mun til að jafna markatölu Ástrala.

Sádi-Arabía mun líklegast fara í umspilskeppni ásamt Indónesíu, Írak, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Palestína og Óman eiga að lokum úrslitaleik um síðasta sætið í umspilinu, en Palestína er afar óvænt búið að sigra síðustu tvo leiki sína í röð í undankeppninni.

Undankeppni HM - Evrópa
18:45 Finnland - Pólland
18:45 Rúmenía - Kýpur
18:45 San Marino - Austurríki
18:45 Lettland - Albanía
18:45 Serbía - Andorra
18:45 Holland - Malta

Undankeppni HM - Suður-Ameríka
20:00 Bólivía - Síle
23:00 Úrúgvæ - Venesúela
00:00 Argentína - Kólumbía
00:45 Brasilía - Paragvæ
01:30 Perú - Ekvador

Undankeppni HM - Asía
10:35 Japan - Indónesía
11:00 Kína - Barein
11:00 S-Kórea - Kúveit
13:45 Kirgistan - Sameinuðu arabísku furstadæmin
13:45 Úsbekistan - Katar
16:00 Íran - N-Kórea
18:15 Jórdanía - Írak
18:15 Palestína - Óman
18:15 Sádi-Arabía - Ástralía
Athugasemdir
banner