Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Leroy Sané fer líklega með Bayern á HM
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Stjórnendur FC Bayern búast við að Leroy Sané taki þátt á HM félagsliða með liðinu eftir að hafa boðið honum nýjan skammtímasamning.

Sané rennur út á samningi í sumar og er eftirsóttur af stórliðum í Evrópu og víðar. Hann er með samningstilboð á borðinu frá nokkrum félögum, þar á meðal FC Bayern.

Núna er hann þó með tvö mismunandi samningstilboð á borðinu frá Bayern, annað tilboðið til skamms tíma eða út HM félagsliða og annað tilboðið til langs tíma.

Allar líkur eru taldar á því að Sané samþykki skammtímasamninginn hjá Bayern og spili með liðinu á HM í sumar. Hann mun svo taka ákvörðun varðandi framtíðina eftir HM.

Núverandi samningur Sané við Bayern rennur út um næstu mánaðamót en HM félagsliða er búið um miðjan júlí.

Þátttakendur á HM þurfa að staðfesta leikmannahópa sína á morgun. Sérstakur félagaskiptagluggi var opnaður fyrir HM en hann lokar á morgun og verður þá ekki hægt að kaupa inn nýja leikmenn fyrir mótið.

Sané hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal og önnur stórlið í Evrópu, en einnig Galatasaray, Fenerbahce og olíuveldin í Sádi-Arabíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner