Arsenal er að reyna að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir næstu leiktíð og er í leit að framherja. Þar hafa Viktor Gyökeres og Benjamin Sesko helst verið nefndir, en Sesko er efstur á óskalistanum samkvæmt fjölmiðlum á Englandi og í Þýskalandi.
Arsenal hefur hafið viðræður við RB Leipzig um kaup á Sesko, sem er 22 ára gamall og kostar um 80 milljónir evra.
Sesko kom að 27 mörkum í 45 leikjum með Leipzig á nýliðinni leiktíð eftir að hafa náð svipuðum árangri tímabilið 2023-24.
Sesko líður vel hjá Leipzig og ætlar ekki að fara fram á sölu. Hann er þó talinn vera reiðubúinn til að semja við annað félag ef Leipzig samþykkir kauptilboð. Framherjinn á fjögur ár eftir af samningi sínum við þýska félagið.
Arsenal er orðað við ýmsa sóknarleikmenn í sumar þar sem Rodrygo Goes, Nico Williams og Morgan Rogers hafa allir verið nefndir til sögunnar.
Félagið er einnig að reyna að halda sínum bestu mönnum innan sinna raða. Thomas Partey á eftir að taka ákvörðun um framtíðina en hann er í viðræðum við Arsenal, auk þess að vera með mikilvæg samningstilboð á borðinu frá stórum félagsliðum í Evrópu og Sádi-Arabíu.
Partey, sem verður 32 ára í júní, var meðal bestu leikmanna Arsenal á nýliðinni leiktíð en rennur út á samningi í sumar.
Athugasemdir