Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 18:39
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Guðjón Pétur Lýðsson með sigurmarkið
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Haukar 2 - 1 Kormákur/Hvöt
1-0 Kostiantyn Iaroshenko ('14 )
1-1 Goran Potkozarac ('47 )
2-1 Guðjón Pétur Lýðsson ('70 )

Haukar tóku á móti Kormáki/Hvöt í lokaleik dagsins í 2. deild karla og komust heimamenn yfir snemma leiks í Hafnarfirði.

Hinn úkraínski Kostiantyn Iaroshenko skoraði á fjórtándu mínútu og leiddu Haukar 1-0 í leikhlé.

Goran Potkozarac jafnaði metin í upphafi síðari hálfleiks en Haukar áttu eftir að gera sigurmarkið.

Þar var enginn annar en Guðjón Pétur Lýðsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks, Vals og Helsingborg, sem gerði sigurmarkið á 70. mínútu.

Lokatölur 2-1 fyrir Hauka sem eru í fjórða sæti deildarinnar eftir þennan sigur, með 14 stig eftir 7 umferðir. Þeir eru aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Ægis.

Kormákur/Hvöt er um miðja deild með 9 stig.

Haukar Sveinn Óli Guðnason (40') (m), Ísak Jónsson, Eiríkur Örn Beck (78'), Fannar Óli Friðleifsson, Máni Mar Steinbjörnsson, Daði Snær Ingason, Kostiantyn Iaroshenko (24'), Andri Steinn Ingvarsson, Alexander Aron Tómasson, Daníel Smári Sigurðsson, Guðjón Pétur Lýðsson
Varamenn Bjarki Viðar Björnsson, Óliver Steinar Guðmundsson, Guðmundur Axel Hilmarsson (78'), Hallur Húni Þorsteinsson, Magnús Ingi Halldórsson (24'), Óliver Þorkelsson, Þorsteinn Ómar Ágústsson (40') (m)

Kormákur/Hvöt Simon Zupancic (m), Sigurður Pétur Stefánsson, Sergio Francisco Oulu, Acai Nauset Elvira Rodriguez, Helistano Ciro Manga (78'), Kristinn Bjarni Andrason (65'), Matheus Bettio Gotler, Jón Gísli Stefánsson, Goran Potkozarac, Abdelhadi Khalok El Bouzarrari, Juan Carlos Dominguez Requena (85')
Varamenn Papa Diounkou Tecagne (78), Sigurður Bjarni Aadnegard, Hlib Horan, Haukur Ingi Ólafsson, Marko Zivkovic (85), Jaheem Burke (65), Stefán Freyr Jónsson
Athugasemdir
banner