Dean Huijsen, leikmaður Real Madrid, er mikill stuðningsmaður Sergio Ramos, goðsagnar Real.
Huijsen greindi frá því að sigurmark Ramos gegn Atletico Madrid í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2014 hafi verið hans fyrsta fótboltaminning.
Huijsen greindi frá því að sigurmark Ramos gegn Atletico Madrid í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2014 hafi verið hans fyrsta fótboltaminning.
„Hann seendi mér skilaboð daginn sem skiptin voru staðfest. Hann er átrúnaðargoðið mitt, besti miðvörður sögunnar. Ég var níu ára þegar hann skoraði þetta mark í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2014, það var mín fyrsta fótboltaminning," sagði Huijsen.
Ramos er goðsögn hjá Real Madrid en hann lék 671 leik fyrir liðið og skoraði 101 mark. Hann vann spænsku deildina fimm sinnum og Meistaradeildina fjórum sinnum með Real á árunum 2005-2021.
Athugasemdir