Sádi-arabíska stórveldinu Al-Hilal mistókst að krækja í Victor Osimhen á dögunum þrátt fyrir að hafa fengið kauptilboði sínu samþykkt af Napoli.
Osimhen vill frekar bíða eftir félagsliði í Evrópu en þá situr Al-Hilal eftir án framherja, að undanskildum Aleksandar Mitrovic sem skoraði 28 mörk og gaf 7 stoðsendingar í 36 leikjum á nýliðinni leiktíð.
Simone Inzaghi nýráðinn þjálfari Al-Hilal vill fá nýjan framherja til félagsins fyrir HM félagsliða. Al-Hilal verður að ganga frá kaupum á nýjum sóknarmanni á morgun til að geta skráð hann til leiks og er tíminn því ekki að vinna með olíufurstunum.
Al-Hilal hefur ákveðið að snúa sér að slóvenska framherjanum Benjamin Sesko, sem leikur fyrir RB Leipzig í Þýskalandi. Sesko er gríðarlega eftirsóttur og hefur einna helst verið orðaður við Arsenal.
Arsenal er þó ekki að flýta sér í viðræðum við Leipzig svo Al-Hilal getur nýtt tækifærið og tekið yfir bílstjórasætið. Það er þó óljóst hvort Sesko hafi áhuga á að spila í Sádi-Arabíu.
Al-Hilal þarf að greiða um 80 milljónir evra til að kaupa Sesko, auk þess sem framherjinn myndi krefjast þess að fá risastóran samning til að flytja til Mið-Austurlandanna.
Hjá Al-Hilal yrði Sesko liðsfélagi leikmanna á borð við Rúben Neves, Malcom, Sergej Milinkovic-Savic, Joao Cancelo og Kalidou Koulibaly.
Fabrizio Romano og Sky Sports greina frá stóru tilboði frá Al-Hilal, en taka einnig fram að Sesko virðist ekki spenntur fyrir að spila utan Evrópu.
Athugasemdir