
Tveimur leikjum var að ljúka í Lengjudeildinni rétt í þessu þar sem ÍR gerði jafntefli við Þór í toppbaráttuslag á meðan Leiknir R. vann annan sigur sinn í röð.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 1 ÍR
Þór 1 - 1 ÍR
0-1 Arnór Sölvi Harðarson ('18)
1-1 Clement Bayiha ('73)
Rautt spjald: Marc Mcausland ('20)
Rautt spjald: Orri Sigurjónsson ('77)
Liðin áttust við á Akureyri og tók Arnór Sölvi Harðarson forystuna fyrir ÍR á 18. mínútu við mikil mótmæli Þórsara. Heimamenn áttu skalla í slá og vildu svo fá vítaspyrnu en ekkert var dæmt og brunuðu ÍR-ingar upp í skyndisókn og skoruðu. Arnór Sölvi hljóp upp allan völlinn og skoraði svo.
Sigurður Hjörtur Þrastarson dómari hafði áhrif á leikinn í skyndisókn ÍR þar sem hann steig óvart fyrir leikmann Þórs sem hefði getað náð til boltans. Heimamenn voru gríðarlega óánægðir en tveimur mínútum síðar fór rautt spjald á loft.
Marc McAusland fékk að líta beint rautt spjald fyrir að gefa Ibrahima Balde olnbogaskot í hausinn. Þá voru 10 ÍR-ingar eftir á vellinum gegn 11 Þórsurum.
Heimamönnum gekk illa að skapa sér færi þrátt fyrir að vera einum fleiri en Clement Bayiha var hættulegastur og átti skot í stöng.
Gestirnir frá Breiðholti voru næstum búnir að tvöfalda forystuna eftir skyndisókn í síðari hálfleik og komust Þórsarar nálægt því að jafna áður en þeim tókst það loksins. Hinn líflegi Clement var þar á ferðinni þegar hann fylgdi skoti eftir með marki. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson markvörður ÍR varði boltann út í teiginn í stað þess að halda honum eða verja hann í hornspyrnu.
Fimm mínútum síðar jafnaðist í liðunum þegar Orri Sigurjónsson fékk að líta sitt annað gula spjald fyrir brot á leikmanni ÍR sem var að sleppa í gegnum vörnina.
ÍR fékk besta færið á lokakaflanum en Aron Birkir Stefánsson varði vel svo lokatölur urðu 1-1 á Akureyri.
ÍR er með 15 stig á toppi deildarinnar, fjórum stigum fyrir ofan Þór.
Leiknir R. 3 - 1 Völsungur
0-1 Rafnar Máni Gunnarsson ('67)
1-1 Shkelzen Veseli ('73)
2-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('80)
3-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('89)
Lestu um leikinn
Leiknir R. tók svo á móti Völsungi í neðri hlutanum og var staðan markalaus eftir leiðinlegan fyrri hálfleik, þar sem gestirnir frá Húsavík fengu þó besta færið.
Síðari hálfleikurinn fór rólega af stað en mörkin létu ekki standa á sér þegar tók að líða á leikinn. Rafnar Már Gunnarsson tók forystuna fyrir Völsung þegar hann náði fyrstur til boltans eftir markvörslu Ólafs Íshólms Ólafssonar. Varnarmenn Leiknis virtust steinsofandi.
Heimamönnum tókst að jafna skömmu síðar með marki beint úr aukaspyrnu. Shkelzen Veseli átti lausa spyrnu en boltinn rataði einhvern veginn framhjá öllum pakkanum í vítateignum og lak svo í netið. Staðan orðin 1-1 þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.
Leiknismenn skiptu um gír eftir jöfnunarmarkið og tók Dagur Ingi Hammer Gunnarsson forystuna eftir magnaðan undirbúning frá Róberti Quental Árnasyni á hægri kantinum. Dagur gerði vel að kasta sér á fyrirgjöfina til að klára með marki.
Völsungur átti engin svör og innsiglaði Dagur Ingi sigurinn með góðu skoti á lokamínútunum, eftir undirbúning frá Axeli Frey Harðarsyni. Lokatölur 3-1 fyrir Leikni.
Þetta er annar sigur Leiknis í röð og jafnframt annar sigur liðsins á deildartímabilinu. Leiknir er með 7 stig eftir sigurinn, tveimur stigum fyrir neðan Völsung.
Athugasemdir