Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segir að Liverpool og Arsenal muni hagnast á því að spila ekki á HM félagsliða sem fram fer í sumar.
Manchester City og Chelsea, líklega helstu keppinautar þeirra liða um enska meistaratitilinn á komandi tímabili, munu taka þátt í mótinu sem er með stærra sniði en áður. 32 lið munu taka þátt í mótinu sem fram fer í Bandaríkjunum og fær sigurliðið um 100 milljónir dollara.

Um mánuði eftir úrslitaleikinn hefst nýtt tímabil í Evrópuboltaum, og því ekki mikill tími fyrir hvíld hjá leikmönnum liðanna.
„Ég held að þetta muni hafa mikil áhrif og að þetta muni gefa Liverpool og Arsenal mikið forskot upp á næsta tímabil að gera að vera ekki á mótinu."
„Ég held að þetta verði skemmtileg upplifun fyrir leikmennina að taka þátt, svo að ég hef blendnar tilfinningar."
„Ég hef ákveðið að hafa ekki of miklar áhyggjur, því af hverju ætti ég að hafa þær? Þetta mót mun fara fram, og enginn veit hvaða áhrif það mun hafa."
„Við munum glíma við áhrifin þegar þau koma, sjáum til hvað gerist," sagði Tuchel á fréttamannafundi fyrir vináttuleikinn gegn Senegal sem fram fer í kvöld.
Athugasemdir