Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   þri 10. júní 2025 17:31
Elvar Geir Magnússon
Belfast
Byrjunarlið Íslands í Belfast - Fimm breytingar
Fjórir fremstu þeir sömu
Willum á landsliðsæfingu á Windsor Park í gær.
Willum á landsliðsæfingu á Windsor Park í gær.
Mynd: KSÍ
Strákarnir okkar í íslenska karlalandsliðinu heimsækja Norður-Írland í vináttulandsleik sem hefst 18:45 að íslenskum tíma.

Strákarnir sigruðu Skotland í síðasta æfingaleik og ættu því að mæta fullir sjálfstrausts í leikinn gegn Norður-Írum.

Lestu um leikinn: Norður-Írland 1 -  0 Ísland

Eins og Arnar Gunnlaugsson var búinn að tilkynna þá er Hákon Rafn Valdimarsson í marki Íslands í kvöld. Alls gerir hann fimm breytingar á byrjunarliðinu en fjórir fremstu menn eru áfram þeir sömu.

Daníel Leó Grétarsson og Logi Tómasson koma inn í vörnina í stað Harðar Björgvins Magnússonar og Mikaels Egils Ellertssonar. Arnór Ingvi Traustason og Willum Þór Willumsson koma á miðjuna í stað Stefáns Teits Þórðarsonar og Ísaks Bergmanns Jóhannssonar.


Byrjunarlið Norður-Írland:
1. Pierce Charles (m)
2. Conor Bradley
4. Daniel Ballard
5. Trai Hume
6. George Saville
11. Paul Smyth
14. Isaac Price
15. Justin Devenny
19. Shea Charles
20. Brodie Spencer
21. Ronan Hale

Byrjunarlið Ísland:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Logi Tómasson
3. Daníel Leó Grétarsson
4. Guðlaugur Victor Pálsson
5. Sverrir Ingi Ingason
8. Hákon Arnar Haraldsson
10. Albert Guðmundsson
11. Jón Dagur Þorsteinsson
15. Willum Þór Willumsson
21. Arnór Ingvi Traustason
22. Andri Lucas Guðjohnsen
Athugasemdir
banner