Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 14:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kristall Máni til Grikklands?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristall Máni Ingason gæti verið á leið til Grikklands frá danska félaginu SönderjyskE. Það er Orri Rafn Sigurðarson, fyrrum fréttaritari Fótbolti.net, sem greinir frá þessum tíðindum á X.

Orri sagði í gær að áhugi væri frá Aris Thessaloniki. Frekari tíðinda er að vænta seinna í þessari viku. Aris endaði í 5. sæti grísku úrvalsdeildarinnar og kemur inn í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni í sumar.

SönderjyskE vill fá 1,5 milljón evra fyrir Kristal samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Kristall Máni er 23 ára sóknarmaður sem var að klára sitt annað tímabil hjá SönderjyskE, hann kom frá Rossenborg sumarið 2023. Hann er samningsbundinn danska félaginu fram á sumarið 2027.

Á liðnu tímabilið kom hann við sögu í 20 leikjum með SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni, byrjaði 16 þeirra. Hann skoraði eitt mark og lagði upp tvö mörk. Liðið endaði í 9. sæti deildarinnar og hélt með því sæti sínu í úrvalsdeildinni.

Atli Barkarson, fyrrum liðsfélagi Kristals hjá SönderjyskE, sagði við Fótbolta.net í síðasta mánuði að SönderjyskE þyrfti að selja leikmann í nánast hverjum glugga. SönderjyskE gæti verið að horfa á Kristal sem söluvöru í þessum glugga.

„Ég var búinn að vera hjá félaginu í tvö og hálft ár sem er þannig séð líftíminn hjá erlendum leikmönnum hjá SönderjyskE, maður er ekkert mikið lengur þar," sagði Atli við Fótbolta.net en hann var seldur frá SönderjyskE sumarið 2024.


Athugasemdir