Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   þri 10. júní 2025 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leeds horfir til Villa
Mynd: EPA
Leeds hefur, samkvæmt heimildum talkSPORT áhuga á Alex Moreno, bakverði Aston Villa.

Villa hefur sett fimm milljóna punda verðmiða á Moreno sem kom til félagsins frá Real Betis í janúar 2023.

Hann er 32 ára og var á liðnu tímabili á láni hjá Nottingham Forest.

Hann á að baki 48 leiki fyrir Villa, þar af 23 sem byrjunarliðsmaður í úrvalsdeildinni.

Leeds er í leit að meiri úrvalsdeildarreynslu í sinn hóp en félagið var fyrr í sumar orðað við Callum Wilson, framherja Newcastle.
Athugasemdir