
Ísland tapaði gegn Norður-Írlandi í æfingaleik í Belfast í kvöld. Liðið var manni fleiri síðasta hálftímann en náði lítið sem ekkert að skapa sér.
Lárus Orri Sigurðsson, sérfræðingur á Stöð 2 Sport, var mjög ósáttur með liðið og sagði að það vantaði alla ástríðu í liðið.
Lárus Orri Sigurðsson, sérfræðingur á Stöð 2 Sport, var mjög ósáttur með liðið og sagði að það vantaði alla ástríðu í liðið.
Lestu um leikinn: Norður-Írland 1 - 0 Ísland
„Þessi leikur var klárlega vonbrigði. Við töluðum um það að það hafi verið hiti í leiknum, þetta hafi ekki verið eins og æfingaleikur. Það var hiti hjá öðru liðinu, það var ástríða hjá Norður-Írum í lokin. Þeir hoppa í eina tæklingu og hver voru viðbrögðin okkar? Ýta manninum aðeins, come on, tökum þátt í leiknum, svörum með tæklingu á móti og sýnum smá ástríðu líka," sagði Lárus Orri.
„Það var aldrei spurning eftir að þessi leikmaður var rekinn út af að Norður-Írar voru að fara vinna þennan leik. Þeir virkilega vildu það. Það kom smá kafli í seinni hálfleik þar sem við vorum að finna leikmenn í holunni þar sem maður hélt að þetta væri að þróast í rétta átt hjá okkur. Allur leikurinn og viðhorfið vonbrigði."
Athugasemdir