
Tindastóll 1 - 3 ÍBV
0-1 Olga Sevcova ('5 )
1-1 Birgitta Rún Finnbogadóttir ('72 )
1-2 Allison Grace Lowrey ('77 , víti)
1-3 Allison Patricia Clark ('82 )
Lestu um leikinn
0-1 Olga Sevcova ('5 )
1-1 Birgitta Rún Finnbogadóttir ('72 )
1-2 Allison Grace Lowrey ('77 , víti)
1-3 Allison Patricia Clark ('82 )
Lestu um leikinn
ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir að hafa unnið Tindastól, 3-1, á Sauðárkróksvelli í dag. Þetta er í fyrsta sinn í átta ár sem ÍBV kemst í undanúrslit bikarsins.
Olga Sevcova kom Eyjakonum á bragðið strax á 5. mínútu er hún slapp í gegn og sendi boltann framhjá Genevieve Jae Crenshaw í markinu.
Stólarnir fengu dauðafæri til að jafna tíu mínútum síðar. Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV, missti boltann eftir aukaspyrnu og datt hann fyrir Makala Woods, en hún fór illa að ráði sínu og skaut boltanum yfir markið.
Annars var lítið um hættuleg færi fram að hálfleiknum og staðan 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Olga kom boltanum í netið strax í upphafi síðari hálfleiks en var flögguð rangstæð. Rólegt var yfir leiknum næstu tuttugu mínútur eða svo eða fram að 72. mínútu.
Þá átti Snæfríður Eva Eiríksdóttir frábæra sendingu inn fyrir á Birgittu Rún Finnbogadóttur. Guðný var lengi að ákveða sig hvort hún ætti að hlaupa út á móti eða ekki og lenti í veseni. Birgitta skeiðaði framhjá henni og setti boltann í netið.
Mínútu síðar var Birgitta ekki langt frá því að koma heimakonum yfir. Elísa Bríet Björnsdóttir átti flottan bolta á Birgittu sem setti boltann rétt framhjá markinu.
Það kom smá meðbyr með Stólunum en hann tapaðist þegar ÍBV fékk vítaspyrnu. Nicola Hauk handlék boltann og skoraði Allison Grace Lowrey úr spyrnunni.
Fimm mínútum síðar gerði nafna hennar, Allison Patricia Clark, út um leikinn. Olga hljóp upp kantinn og kom boltanum fyrir á Clark sem negldi boltanum í netið.
Svakalegar lokamínútur en það eru Eyjakonur sem taka sér sæti í undanúrslitum og það í fyrsta sinn frá 2017. Þá fóru Eyjakonur alla leið og spurning hvort sagan muni endurtaka sig í ár.
Athugasemdir