Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 14:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lék með KR í fyrra og er nú orðaður við tyrknesku deildina
Neffati á Meistaravöllum í fyrra.
Neffati á Meistaravöllum í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Moutaz Neffati lék á síðasta tímabili nokkra leiki með KR á láni frá sænska félaginu Norrköping. Samkvæmt heimildum Fotbolldirekt í Svíþjóð hefur Eyüpspor í Tyrklandi lagt fram tilboð í Neffati. Eyüpspor var nýliði í tyrknesku úrvalsdeildinni í vetur en náði að enda í 6. sæti deildarinnar.

Hann er fæddur árið 2004 og verður 21 árs í september. Hann hefur verið valinn í U21 lansdslið Svía en er líka með tengingar til Túnis. Hann er hægri bakvörður og lék alls fimm leiki í Bestu deildinni og einn leik í Mjólkurbikarnum á síðasta tímabili.

Hann byrjaði þrjá deildarleiki en fékk rauða spjaldið í einum þeirra. Í leikjunum fimm í deildinni fékk KR einungis tvö stig, ein innkoman var reyndar í blálokin gegn Breiðabliki þegar Blikar voru yfir.

Eftir endurkomuna frá KR fór Neffati í stórt hlutverk hjá Norrköping og festi sig sem byrjunarliðsmaður í sænsku úrvalsdeildinni. Hann hefur haldið því hlutverki á þessu tímabili.
Athugasemdir