Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gætu samþykkt 60 milljónir fyrir Joao Pedro
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því að brasilíski sóknarleikmaðurinn Joao Pedro sé líklega á förum frá Brighton í sumar.

Joao Pedro missti af síðustu leikjum tímabilsins eftir að hafa verið settur í agabann fyrir að lenda upp á kant við liðsfélaga sinn Jan Paul van Hecke á æfingu. Van Hecke var ekki settur í agabann.

Joao Pedro er með þrjú ár eftir af samningi og hefur verið orðaður við ýmis stórlið úr ensku úrvalsdeildinni, en Telegraph greinir frá því að Newcastle United leiði kapphlaupið.

Newcastle er í leit að nýjum sóknarleikmanni og myndi Joao Pedro passa vel fyrir Eddie Howe þjálfara. Hann vill fá gæðamikinn leikmann sem getur leyst ýmis mismunandi hlutverk í sóknarlínunni.

Joao Pedro leikur í fremstu víglínu en getur einnig spilað í öllum stöðum í sóknarlínunni, hvort sem það er úti á öðrum hvorum kantinum eða í holunni fyrir aftan fremsta mann.

Romano segir að Brighton sé reiðubúið til að selja leikmanninn fyrir um 60 milljónir punda.

Joao Pedro er 23 ára gamall og kom að 17 mörkum í 30 leikjum með Brighton á nýliðnu tímabili. Hann kom að 23 mörkum í 40 leikjum tímabilið þar á undan.
Athugasemdir
banner