Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   þri 10. júní 2025 20:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísland tapaði gegn tíu leikmönnum Norður-Írlands
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norður-Írland 1 - 0 Ísland
1-0 Isaac Price ('36 )
Rautt spjald: Brodie Spencer, Norður-Írland ('57)
Lestu um leikinn

Íslenska landsliðið mætti Norður-Írlandi í æfingaleik í Belfast í kvöld. Ísland vann frábæran sigur á Skotlandi á dögunum.

Íslenska liðið var í vandræðum í fyrri hálfleik og Norður-Írland komst yfir eftir rúmlega hálftíma leik. Arnór Ingvi Traustason missti boltann á hættulegum stað og Isaac Price fékk boltann og skoraði með góðu skoti fyrir utan teiginn.

Norður-Írar voru nálægt því að bæta við marki undir lok fyrri hálfleiks en Ronan Hale átti hörku skot í samskeytin af stuttu færi.

Ísland var mun meira með boltann í fyrri hálfleik en náði ekki að skapa sér mikið.

Brodie Spencer braut illa á Andra Lucasi snemma í seinni hálfleik en slapp við áminningu. Hann fékk hins vegar rautt spjald eftir tæplega klukkutíma leik þegar hann braut á Hákoni Haraldssyni þegar hann var að sleppa í gegn.

Tíu mínútum síðar var Andri nálægt því að jafna metin en Price var réttur maður á réttum stað fyrir heimamenn og bjargaði á línu.

Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á í seinni hálfleik og hann komst í gott færi en skotið rétt framhjá. Íslenska liðið fékk dauðafæri seint í uppbótatímanum. Ísak Bergmann átti skalla sem Pierce Charles í marki Norður-Írlands varði út í teiginn en þeim tókst að loka vel og íslenska liðið náði ekki skoti á markið.

Það var síðasta tækifæri liðsins að jafna metin og því fór Norður-Írland með sigur af hólmi.
Athugasemdir
banner