Allt stefnir í að Thomas Frank verði ráðinn nýr stjóri Tottenham Hotspur á næstu dögum en viðræðurnar eru sagðar á lokastigi.
Tottenham lét ástralska stjórann Ange Postecoglou taka poka sinn á dögunum þrátt fyrir að hann hafi unnið fyrsta titil félagsins í 17 ár og komið liðinu í Meistaradeildina.
Árangur liðsins í deildinni var hins vegar óviðunandi og leiddi það til brottreksturs.
Tottenham hefur rætt við Thomas Frank, stjóra Brentford, síðustu daga og segir Fabrizio Romano að viðræður séu nú á lokastigi.
Frank hefur náð ótrúlegum árangri með Brentford. Hann byrjaði sem aðstoðarþjálfari árið 2018 en tók við í október sama ár og stýrði Brentford upp í úrvalsdeildina tveimur árum síðar.
Þar hefur honum tekist að gera Brentford að samkeppnishæfu liði og skilur hann við liðið á góðum stað, en það hafnaði í 10. sæti á síðasta tímabili.
Athugasemdir