Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Truffert tekur við af Kerkez: „here we go!"
Truffert í baráttu við Ismaël Bennacer leikmann AC Milan.
Truffert í baráttu við Ismaël Bennacer leikmann AC Milan.
Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskipti Adrien Truffert til Bournemouth.

Truffert er franskur bakvörður sem á að fylla í skarðið sem myndast við söluna á Milos Kerkez til Liverpool.

Truffert er 23 ára gamall og hefur þegar spilað einn A-landsleik fyrir Frakkland eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur upp yngri landsliðin. Hann var algjör lykilmaður í U21 landsliðinu og svo U23 liðinu sem fór á Ólympíuleikana í fyrra.

Truffert kemur úr röðum Rennes í Frakklandi og borgar enska úrvalsdeildarfélagið tæplega 20 milljónir evra til að festa kaup á bakverðinum, sem er bara með eitt ár eftir af samningi sínum við uppeldisfélagið.

Bournemouth mun kynna Truffert sem nýjan leikmann á næstu dögum og þá getur Liverpool gert slíkt hið sama með Milos Kerkez.
Athugasemdir
banner
banner