
Ísland tapaði gegn Norður-Írlandi í Belfast í kvöld. Þrátt fyrir að spila stóran hluta seinni hálfleiks manni færri náði Ísland ekki inn marki í leiknum og náði ekki að fylgja eftir flottri frammistöðu í Glasgow.
Hákon Rafn Valdimarsson 6
Fínn þegar hann var með boltann í fótunum en það reyndi ekki mikið á hann. Þurfti einu sinni að sækja boltann úr netinu en lítið við hann að sakast í þessum mörkum.
Guðlaugur Victor Pálsson 6,5
Traustur og stóð vel fyrir sínu í vörninni.
Daníel Leó Grétarsson 5,5
Fékk tækifæri í byrjunarliðinu og lék í hjarta varnarinnar í 62 mínútur. Ekki mikið út á leik hans að setja.
Sverrir Ingi Ingason 6,5
Reynsluboltinn Sverrir Ingi var besti maður Íslands á heildina litið í þessum glugga.
Logi Tómasson 4,5
Var langt frá því að vera sannfærandi og átti lélegar spyrnur þegar hann komst í hættulegar stöður sóknarlega í fyrri hálfleiknum. Varð aðeins betra í seinni hálfleik.
Arnór Ingvi Traustason 4
Lék fyrri hálfleikinn. Tapaði knettinum í aðdraganda marksins sem Isaac Price skoraði og var ólíkur sjálfum sér.
Willum Þór Willumsson 5
Byrjaði leikinn á miðsvæðinu og fékk að líta gult spjald í fyrri hálfleik, braut nokkrum sinnum af sér og var fljótur að koma sér á hættusvæði. Tekinn af velli á 62. mínútu.
Albert Guðmundsson 6
Átti nokkrar mjög flottar rispur og hættulegar sendingar en vantaði aðeins herslumuninn. Spilaði í 74 mínútur.
Hákon Arnar Haraldsson 6
Vann rauða spjaldið á Brodie Spencer með því að koma sér í hættulega stöðu. Var líflegri í seinni hálfleik en maður vildi meira frá honum í fyrri.
Jón Dagur Þorsteinsson 5,5
Mjög líflegur í upphafi leiks en svo fjaraði undan því eins og hjá öðrum í íslenska liðinu. Tekinn af velli á 62. mínútu.
Andri Lucas Guðjohnsen 6
Kom sér í nokkur hálffæri en maður hefði viljað sjá hann fá aðeins meiri þjónustu.
Varamenn:
Þórir Jóhann Helgason 5,5
Mikael Anderson 5,5
Kristian Hlynsson 5
Aðrir léku of lítið til að fá einkunn
Athugasemdir