Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   þri 10. júní 2025 22:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yfirlýsing Njarðvíkur og Þróttar - „Félögin standa sameinuð gegn hvers kyns fordómum"
Lengjudeildin
Oumar Diouck
Oumar Diouck
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík og Þróttur hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu vegna atviks sem átti sér stað í leik liðanna í Lengjudeildinni í gær. Tveir stuðningsmenn Þróttar létu ókvæðisorð falla um Oumar Diouck, leikmann Njarðvíkur.

Yfirlýsing Njarðvíkur og Þróttar

Eftir leik félaga okkar í Lengjudeildinni þann 9. júní 2025 kom til orðaskipta í leikmannagöngunum milli áhorfenda Þróttar og leikmanna Njarðvíkur.

Félögin harma þessi orðaskipti og telja þau bæði óþörf og ósæmileg.

Knattspyrnudeild Þróttar biðst velvirðingar á því að gæslan í leikmannagöngunum eftir leik hafi ekki verið fullnægjandi. Bætt verður úr því af hálfu félagsins.

Vegna umræðu í kjölfar atviksins vilja félögin árétta að þau standa sameinuð gegn hvers kyns fordómum, mismunun og útilokun. Félögin leggja ríka áherslu á virðingu, jafnrétti og mannréttindi sem ófrávíkanleg gildi í allri starfsemi. Félögin hafna adráttarlaust allri hegðun sem byggir á neikvæðum staðalímyndum eða stuðlar að ójöfnuði, hvort sem það snýr að uppruna, kyni, kynhneiðg, trúarbrögðum, fötlun eða öðrum þáttum.



Athugasemdir
banner