Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 21:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikar kvenna: Nadía skaut bikarmeisturunum í undanúrslit
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 2 - 1 Þróttur R.
1-0 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('21 )
1-1 Freyja Karín Þorvarðardóttir ('66 )
2-1 Nadía Atladóttir ('85 )
Lestu um leikinn

Valur er komið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigur á Þrótti á Hlíðarenda í 8-liða úrslitunum í kvöld.

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir kom Valskonum yfir þegar hún skoraði með laglegu skoti í nærhornið.

Það gekk illa hjá Þrótturum að ógna almennilega í fyrri hálfleik en liðið átti nokkur skot utan af velli undir lok fyrri hálfleiksins sem Tinna Brá Magnúsdóttir var ekki í miklum vandræðum með.

Þeim tókst að jafna eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Freyja Karín Þorvarðardóttir átti gott skot úr teignum og boltinn hafnaði í netinu.

Þróttarar héldu áfram að sækja en tókst ekki að setja boltann í netið. Valskonur náðu að refsa þegar Elísa Viðarsdóttir sendi á Nadíu Atladóttur sem skoraði.

Þórdís Elva Ágústsdóttir var nálægt því að jafna metin undir lokin en Tinna Brá varði frábærlega. Það var síðasta tækifæri Þróttar og Valur fór því með sigur af hólmi.

Topplið Bestu deildarinnar er því úr leik en ríkjandi bikarmeistarar Vals eru komnar í undanúrslit ásamt ÍBV en tvær síðustu viðureignirnar fara fram á morgun.
Athugasemdir
banner