Þegar Freyr Alexandersson var ráðinn þjálfari Brann þá var nokkuð mikið talað um Erik Huseklepp, bæjarhetjuna í Bergen.
Huseklepp er fæddur í Bergen og er hetja í borginni. Hann lýsti yfir áhuga á að taka við sem aðalþjálfari hjá Brann áður en Freyr var ráðinn, en hann þjálfaði liðið til bráðabirgða eftir að Eirik Horneland lét af störfum til að taka við Saint-Etienne í Frakklandi.
Huseklepp er fæddur í Bergen og er hetja í borginni. Hann lýsti yfir áhuga á að taka við sem aðalþjálfari hjá Brann áður en Freyr var ráðinn, en hann þjálfaði liðið til bráðabirgða eftir að Eirik Horneland lét af störfum til að taka við Saint-Etienne í Frakklandi.
Huseklepp lék lengi með Brann og hafði verið í þjálfarateymi félagsins frá 2022. Freyr hafði áhuga á því að halda Huseklepp hjá félaginu en það gekk ekki eftir.
Freyr byrjaði norsku úrvalsdeildina á 3-0 tapi gegn Fredrikstad og þá byrjuðu sérfræðingarnir í Osló að tala um að Huseklepp væri að bíða eftir starfinu hans. Freyr hafði þó engar áhyggjur af þeirri umræðu en eftir það tap, þá hefur gengið mjög vel og er Brann sem stendur í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar.
„Hann er ekki með þjálfararéttindi. Það skiptir mig engu máli. Ég geri mér þó grein fyrir því að Eirik Huseklepp og Eirik Horneland, sem var aðalþjálfari liðsins, að þeirra skuggi mun vera yfir mér og okkur næsta árið og mögulega þangað til við komumst eitthvað áfram í Evrópu eða vinnum titil. Við vinnum með það. Ég þekki Huseklepp vel og það er allt í góðu," sagði Freyr við Fótbolta.net.
„Ég get ekki verið að skipta mér af því þó einhver Morten í Osló skrifi um að Eirik Huseklepp eigi að vera þjálfari Brann eða ekki. Ég veit að ég er með fullan stuðning stuðningsmanna og yfirmanna minna."
Kom ekki til greina að halda Huseklepp í þjálfarateyminu?
„Jú, ég bauð honum hlutverk. Það hlutverk hefði hentað honum vel. Það hlutverk sem hann hafði áður var ekki hlutverk sem fyrirfinnst í mörgum þjálfarateymum. Það þurfti að breyta aðeins hlutverkinu hans," sagði Freyr.
Athugasemdir