Lamine Yamal, leikmaður Barcelona, hefur eðlilega fengið mikið lof fyrir spilamennsku sína með félagsliði sínu ásamt landsliði Spánar.
Þessi 17 ára gamli hægri vængmaður spilaði 55 leiki fyrir Barcelona á síðustu leiktíð skoraði 18 mörk og lagði upp 25.
Hollenska goðsögnin Marco Van Basten hrósaði honum í hástert eftir tap Barcelona gegn Inter í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en hann velti því fyrir sér hvort leikmaðurinn væri að spila í réttri stöðu.

„Það er synd að hann spili á hægri vængnum því hann fær ekki boltann nógu mikið. Ef hann spilar meira fyrir miðju getur hann haft miklu meiri áhrif á leikinn," sagði Van Basten.
„Auðvitað ógnar hann endalaust á hægri vængnum. En ef hann spilar fyrir miðju getur hann gert miklu meira fyrir liðið. Það er næsta skrefið fyirr hann. Hann getur skorað mörk og sent fyrirgjafir, við vitum það nú þegar. Næsta skref þarf að vera: Hvaða áhrif getur hann haft á liðið? Svona góður leikmaður á að spila meira á miðjum vellinum."
Athugasemdir