Það fór kannski framhjá mörgum, og kannski eðlilega þar sem leikurinn var ekki mikið fyrir augað, að í lok leiks FH og Aftureldingar endurheimti FH lykilmann í sínu liði þegar Ísak Óli Ólafsson kom inn á sem varamaður.
Miðvörðurinn meiddist illa snemma á þessu ári og svartsýnustu menn bjuggust ekki við honum aftur fyrr en mun seinna á þessu tímabili.
Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, í dag.
Miðvörðurinn meiddist illa snemma á þessu ári og svartsýnustu menn bjuggust ekki við honum aftur fyrr en mun seinna á þessu tímabili.
Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, í dag.
„Hann er búinn að vera lengi frá, endurhæfingin gekk vonum framar og það er að miklu leyti honum að þakka, hann er búinn að æfa hrikalega vel undir styrkri stjórn bæði styrktarþjálfara og sjúkraþjálfara hjá okkur. Það að hann hafi getað verið klár fyrir landsleikjahléið var frábært fyrir okkur. Núna þarf hann að halda áfram að byggja sig upp og fjölga mínútunum hægt og rólega. Ég held það sé ekkert langt í það að hann verði farinn að berjast um byrjunarliðssætið," segir Davíð.
FH mun ræða við AIK
Við endurkomu Ísaks eykst breiddin í hjarta varnarinnar hjá FH. Félagið er með Ahmad Faqa á láni frá sænska félaginu AIK út júlí. Er einhver möguleiki á að hann verði lengur en það hjá félaginu?
„Við erum búnir að vera mjög ánægðir með hann og við myndum klárlega skoða þann möguleika. Ég er búinn að vera í ágætis samskiptum við AIK, við ákváðum að taka upp þráðinn aftur í lok júnímánaðar með það fyrir augun að sjá aðeins hvernig framhaldið hjá honum yrði. Það fer mikið eftir því hvað þeir segja og hvað þeir vilja gera með hann. Við myndum klárlega vilja halda honum."
Flóki og Bjarni Guðjón byrjaðir að æfa
Kristján Flóki Finnbogason hefur misst af síðustu fjórum leikjum og Bjarni Guðjón Brynjólfsson hefur ekkert verið með á tímabilinu. Hvernig er staðan á þeim?
„Flóki er byrjaður að æfa aftur, höfðum smá áhyggjur að meiðslin væru alvarlegri en þau virðast vera akkúrat núna - sem er frábært. Bjarni er byrjaður að æfa á fullu, er farinn að berjast um sæti í hóp og í liðinu."
Ólíklegt að FH sæki framherja í stað Úlfs
Úlfur Ágúst Björnsson er lykilmaður í liði FH en ljóst er að hann mun ekki klára tímabilið þar sem hann fer til Bandaríkjanna um mánaðamótin júlí/ágúst og klárar síðasta árið við Duke háskólann. Hefur FH tekið einhverja ákvörðun varðandi gluggann, verður tekinn inn framherji?
„Mér finnst það ólíklegt. Eins og staðan er núna erum við með Flóka sem hefur verið að spila upp á topp, Siggi (Sigurður Bjartur Hallsson) er búinn að spila upp á topp og Dagur Trausta hefur komið sterkur inn hjá okkur - er reyndar aðeins frá núna. Mér finnst það því mjög ólíklegt. Auðvitað á maður aldrei að segja aldrei, en þannig hugsum við þetta allavega núna. Mér finnst við vera vel 'coveraðir' frammi. Auðvitað missum við ákveðna eiginleika þegar Úlfur fer, en á móti kemur finnst mér við vera með breiddina og leikmannahópinn til að takast á við það."
Leiðin fram á við er að búa til leikmenn
FH var með tvo leikmenn í U21 landsliðshópnum. Þeir Baldur Kári Helgason og Tómas Orri Róbertsson spiluðu vináttuleiki gegn Brasilíu og Kólumbíu. Tómas var að spila sína fyrstu leiki í íslensku treyjunni.
„Þeir eru báðir tveir búnir að spila mjög vel, eru tvær alvöru týpur; gaurar sem eru búnir að leggja mikið á sig til að taka framförum og viljugir að hlusta. Ef fram heldur sem horfir eiga þeir bjarta framtíð. Þetta er hluti af þeirri vegferð sem við erum á, að reyna vera með ungt og spennandi lið sem stendur sig líka."
„Dagur (Örn Fjeldsted) er hjá okkur, var ekki í þessum hóp en var þar á undan. Arngrímur (Bjartur Guðmundsson) byrjaði fyrsta leikinn sinn á þessu tímabili á móti Aftureldingu og var mjög öflugur. Við þurfum að reyna halda áfram að búa til leikmenn, það er leiðin fram á við í þessu," segir Davíð.
Besta deildin fer aftur af stað um helgina eftir landsleikjahlé og á FH útileik gegn Fram á sunnudaginn.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 10 | 6 | 2 | 2 | 19 - 11 | +8 | 20 |
2. Breiðablik | 10 | 6 | 1 | 3 | 17 - 16 | +1 | 19 |
3. Valur | 10 | 5 | 3 | 2 | 22 - 13 | +9 | 18 |
4. Vestri | 10 | 5 | 1 | 4 | 12 - 7 | +5 | 16 |
5. Stjarnan | 10 | 4 | 2 | 4 | 17 - 18 | -1 | 14 |
6. ÍBV | 10 | 4 | 2 | 4 | 12 - 15 | -3 | 14 |
7. KR | 10 | 3 | 4 | 3 | 28 - 23 | +5 | 13 |
8. Fram | 10 | 4 | 0 | 6 | 16 - 17 | -1 | 12 |
9. KA | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 - 17 | -7 | 12 |
10. FH | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 - 14 | +1 | 11 |
11. Afturelding | 10 | 3 | 2 | 5 | 8 - 13 | -5 | 11 |
12. ÍA | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
Athugasemdir