Heimild: Dr. Football

Hjörvar Hafliðason heldur úti hlaðvarpsþættinum Dr. Football. Á sínum ferli lék Hjörvar sem markmaður, hann lék 40 leiki í efstu deild og var á tíma á mála hjá Stoke á Englandi.
Í hlaðvarpsþætti dagsins gagnrýndi Hjörvar landsliðsmarkmanninn Hákon Rafn Valdimarsson fyrir markið sem Norður-Írland skoraði í gær. Isaac Price skoraði eina mark vináttulandsleiksins á 36. mínútu, átti gott skot fyrir utan teig sem hann náði að setja vel út í fjærhornið.
Í hlaðvarpsþætti dagsins gagnrýndi Hjörvar landsliðsmarkmanninn Hákon Rafn Valdimarsson fyrir markið sem Norður-Írland skoraði í gær. Isaac Price skoraði eina mark vináttulandsleiksins á 36. mínútu, átti gott skot fyrir utan teig sem hann náði að setja vel út í fjærhornið.
Lestu um leikinn: Norður-Írland 1 - 0 Ísland
„Ótrúlega ömurlegt mark á mörgum 'levelum'. Sverri Ingi lokar ekki fjærhorninu, bendir honum ekki á nær, hjálpar Hákoni ekki neitt. Hann endar með því að skjóta út fyrir Sverri. Það sem Price er búinn að gera í aðdraganda skotsins er að senda tölvupóst á alla á vellinum að hann ætli sér að setja boltann í fjærhornið, hann sýnir öllum hvert hann ætlar að skjóta. Ég ætla vera mjög harður núna. Ef Hákon væri í leikformi, væri að spila allar helgar, þá les hann þetta. Er þetta fáránlega grimmt (hjá mér)?" sagði Hjörvar. Hákon var varamarkmaður Brentford á liðinni leiktíð og spilaði síðast með liðinu í byrjun febrúar.
„Það var ekki eins og þetta hefði verið ristarspyrna í vinkilinn, Price lagðist aftur, skoppaði rétt fyrir framan teiginn. Maður hefði viljað meiri sprengju í Hákoni og hann náð að kýla boltann í burtu," sagði fyrrum landsliðsþjálfarinn Kjartan Henry Finnbogason sem var gestur í þættinum.
„Þegar þú ert í leikformi, þá ertu með svo mikið sjálfstraust að þú ert farinn að lesa svona þegar sóknarmaðurinn opnar líkamann svona rosalega. Hann er að segja við alla að hann sé að fara setj'ann í fjær. Bara svo ég taki allan fyrirvara á þetta, ég gæti verið með tíu markmannsþjálfara hérna og það myndi enginn segja að markmaðurinn hefði átt að eiga séns í þetta. Ég er að vera mjög harður og biðja um smá lestur," sagði Hjörvar sem hefur sjálfur starfað sem markmannsþjálfari.
Það er ljóst að landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson þarf að taka ákvörðun fyrir undankeppnisleikina í september hvort að hann haldi Hákoni sem aðalmarkmanni eða veðji á Elías Rafn Ólafsson sem átti mjög góðan leik gegn Skotlandi á föstudag.
Kjartan Henry kom Arnóri Ingva örlítið til varnar
Arnór Ingvi Traustason fékk harða gagnrýni fyrir markið, hann náði að setja boltann milli fóta leikmanns Norður-Íra nálægt íslenska teignum en náði ekki aftur til boltans og íslenska liðinu refsað strax í kjölfarið.
„Sverrir og Arnór Ingvi unnu boltann, Sverrir setti Arnór Ingva í alvöru vesen, gaf eins metra sendingu, Arnór reyndi að koma sér út úr því og tapaði síðan tæklingunni," sagði Kjartan Henry.
Athugasemdir