Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jhon Duran líður ekki vel í Sádi-Arabíu
Mynd: Al-Nassr
Jhon Duran, leikmaður Al-Nassr, má fara á láni frá félaginu í sumar en þetta kemur fram í sádi arabískum fjölmiðlum.

Duran gekk til liðs við Al-Nassr frá Aston Villa í janúar og lék 18 leiki og skoraði 12 mörk.

Sádi arabískir fjölmiðlar greina frá því að þessum 21 árs gamla kólumbíska framherja líði ekki vel og vilji fara frá félaginu og Al-Nassr hefur gefið grænt ljós á að hann fari á lán í sumar.

Mörg félög eru sögð hafa spurst fyrir um hann en ekkert hefur verið nefnt til sögunnar.
Athugasemdir