Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikmaður Tottenham segir félagið hafa tekið skrítna ákvörðun
Ange Postecoglou.
Ange Postecoglou.
Mynd: EPA
Micky van de Ven, varnarmaður Tottenham, segir að það hafi verið skrítin ákvörðun hjá félaginu að reka Ange Postecoglou úr starfi.

Postecoglou var látinn fara á föstudag þrátt fyrir að hafa unnið fyrsta titil félagsins í 17 ár með því að vinna Evrópudeildina.

Tottenham endaði í 17. sæti í úrvalsdeildinni og tapaði 22 af 38 leikjum sínum í deildinni, og það var vísað í það þegar tilkynning barst frá Spurs um brottrekstur Postecoglou. Nú bendir allt til þess að Thomas Frank muni taka við liðinu.

„Ég held að flestir af leikmönnunum hafi átt gott samband við hann og hann er auðvitað fyrsti stjórinn í langan tíma sem kemur með titil inn í félagið," sagði Van de Ven við hollenska fjölmiðla.

„Það sýnir að hann er með ákveðna eiginleika og sigurhugarfar. Út frá því má segja að þetta hafi verið skrítin ákvörðun."
Athugasemdir
banner