Það er svo sannarlega ekki hægt að tala um að Rasmus Höjlund sé að eiga góða daga.
Hann átti hörmulegt tímabil með Manchester United og er núna að falla aftar í goggunarröðinni hjá danska landsliðinu.
Hann átti hörmulegt tímabil með Manchester United og er núna að falla aftar í goggunarröðinni hjá danska landsliðinu.
Danmörk vann 5-0 sigur á Litháen í vináttulandsleik í gær og var Höjlund settur á bekkinn fyrir Mika Biereth sem átti mjög gott tímabil með Mónakó.
Biereth átti fínan leik þar sem hann skoraði og fiskaði rautt spjald á andstæðinginn.
Danski fjölmiðillinn Bold var ekkert að spara fyrirsagnirnar eftir leik og sagði í umfjöllun eftir leik að Höjlund væri örugglega mjög stressaður núna þar sem búið væri að taka fram úr honum.
Athugasemdir