Spænskir fjölmiðlar segja frá því að Barcelona hafi óvænt áhuga á því að sækja Krótann Ivan Perisic á frjálsri sölu í sumar.
Mundo Deportivo segir frá því að Hansi Flick, þjálfari Barcelona, hafi áhuga á því að semja við Perisic.
Mundo Deportivo segir frá því að Hansi Flick, þjálfari Barcelona, hafi áhuga á því að semja við Perisic.
Perisic er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst gífurlega margar stöður og það er eitthvað sem Flick metur mikils. Hann er líka ódýr kostur.
Það sem er óvænt við þetta er að Perisic er 36 ára gamall og var síðast að spila með PSV í Hollandi. Þar áður var hann kominn heim til Króatíu.
Perisic hefur hug á því að spila á HM 2026 með Króatíu en hann hefur leikið 144 landsleiki fyrir þjóð sína.
Athugasemdir