Liverpool er í viðræðum við Bournemouth um kaup á vinstri bakverðinum MIlos Kerkez.
Liverpool hefur verið mjög upptekið snemma í félagaskiptaglugganum en liðið hefur nælt í Jeremie Frimpong og þá er Florian Wirtz á leiðinni. Þá var það ljóst síðasta sumar að markvörðurinn Giorgi Mamardashvili myndi ganga til liðs við félagið frá Valencia í sumar.

Justin Kluivert, samherji Kerkez hjá Bournemouth, er ánægður fyrir hönd ungverska bakvarðarins. Hann tjáði sig um félagaskiptin við hollenska miðilinn Voetbal Primeur.
„Hann er örugglega að fara þangað. Ég vona það fyrir hans hönd. Hann hefur ekki kvatt okkur ennþá en ég vona að hann muni gefa sér tíma í það," sagði Kluivert
Athugasemdir