Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
   mið 11. júní 2025 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ætla að ræða við Man Utd um Antony
Antony.
Antony.
Mynd: EPA
Real Betis ætlar að ræða við Manchester United um að fá að halda brasilíska kantmanninum Antony.

Fram kemur á Daily Mail að Betis hafi áhuga á því að fá Antony aftur á láni með kaupmöguleika upp á 35 milljónir punda.

Antony lék með Betis á láni seinni hluta síðasta tímabils og lék hann virkilega vel eftir að hafa átt mjög svo erfiðan tíma með Manchester United.

Antony var keyptur til Man Utd fyrir 86 milljónir punda en stóðst engan veginn væntingar.

Man Utd ætlar að reyna að losa sig við Antony í sumar og spurning hvort að hann fari aftur til Betis.
Athugasemdir
banner