Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
banner
   mið 11. júní 2025 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nico Williams vill fara til Bayern
Mynd: EPA
Nico Williams, leikmaður Athletic Bilbao, vill fara til Bayern Munchen í sumar.

Sky í Þýskalandi segir frá því að Bayern sé í viðræðum við umboðsmann Williams. Þýska félagið er í leit að vængmanni þar sem Leroy Sane er á leið til Galatasaray.

Það er 60-65 milljón evra verðmiði á Williams.

Williams er hins vegar ekki efstur á óskalista Bayern. Félagið vonast til að fá Bradley Barcola frá PSG en franska félagið vill ekki selja hann.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner