Manchester City hefur lagt fram munnlegt tilboð í Elliot Anderson, miðjumann Nottingham Forest að andvirði rúmlega 100 milljóna punda. The Athletic greinir frá.
Tilboðið var að andvirði 106 milljóna punda með mögulegum viðbótum sem hækkar það yfir 120 milljónir punda.
Til að íhuga sölu á enska landsliðsmanninum vill Forest að fasta verðið fari fram úr breska metið en Liverpool greiddi 125 milljónir punda fyrir Alexander Isak frá Newcastle síðasta sumar.
Talið er að fyrsta tilboð Man City hafi hljóðað upp á rúmlega 70 milljónir punda.




