Úrslitaþáttur Fótbolta Nördans mun fara fram í beinni útsendingu á www.watch.livey.events á morgun klukkan 12:30. Þar munu Jóhann Skúli Jónsson og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson eigast við. Jóhann Skúli keppir fyrir hlaðvarpið sitt Draumaliðið, en Guðmundur Aðalsteinn keppir fyrir Fótbolti.net.
Báðir þessir menn hafa komist í úrslitin með því að sigra suma af mestu fótboltaheilum landsins allt frá 16-liða úrslitum. Í útsendingunni verður haldið góðu sambandi við fólk sem stillir inn, og góðar líkur á að áhorfendur geti unnið til verðlauna fyrir þáttöku í léttri spurningakeppni.



